v a n g a v e l t u r & v i t l e y s a
West Wing.
Úff hvað það er gott að vera í fríi og geta hangsað eins og í gömlu góðu dagana. Man ekki hvenær ég átti síðast hangs eins og í nótt - en ég held að batteríin verði hlaðin eftir þetta frí. Er búin að horfa á tíu West Wing þætti undanfarna sólarhringa - þvílík snilld. Og svo er kaffihúsaferð og matarboð á dagskránni. Gott gott.
Um gæði kennslubóka.
Sit í sófanum og hlusta á
Boatman´s Call - uppáhaldsgeisladiskinn minn undanfarin sjö ár og les
Critical Chain - A Business Novel, kennslubók í verkefnastjórnun skrifaða sem skáldsögu. Og það sem meira er - eftir að hafa lesið fyrstu þrjá kaflana er ég bara orðin nokkuð spennt að sjá hvað gerist. Fyrr í kvöld reyndi ég að berjast í gegnum
þetta greinasafn og gat varla þrælað mér í gegnum eina grein, þrátt fyrir að mér sé málið mjög skylt og verið sé að fjalla um hluti sem ég er að velta fyrir mér nokkurn veginn á hverjum degi. Snilldarhugmynd að skrifa skáldsögu. Sé það reyndar ekki fyrir mér virka í "hörðu fögunum", stærðfræðigreiningu, aflfræði eða efnisfræði - en gengur fínt fyrir svona "fuzzy" pælingar eins og flestar greinar stjórnunar. Er ég leiðinlegasta manneskja í heimi að blogga um þetta?
Í dag eru liðin 7 ár
... undarlegt hvað tíminn líður hratt. Lífið leit öðruvísi út þá og var einhvern veginn allt framundan. Ekki svo að skilja að lífið sé ekki allt framundan núna líka - en ég er ekki lengur 18 ára, lítil og reið. Og ég sakna hans.
Scatterbrained þriðjudagur.
Nóg að gera - ég veit bara ekki hvar ég á að byrja. Langar miklu frekar að vera heima hjá mér að leika mér að einhverju af skemmtilega dótinu mínu, t.d. nýju myndavélinni minni, Frankenstein eða horfa á West Wing á dvd. En kannski að ég geri þetta bara í kvöld og verði skynsöm stúlka fram til klukkan fimm.
Annars er þetta veður alveg að fara með einbeitinguna. Sé Esjuna beint fyrir utan gluggann minn og gæti týnt mér í að horfa á hana í allan dag... Og bráðum kemur sumar...
Einn af þessum mánudögum.
Eftir eina af þessum helgum... Og svo er að koma páskafrí - sem er gott. Hmmm... pointless blogg
Meira skrýtið dót.
Mig langar í
svona húfu.
Skemmtileg samsæriskenning.
Á þessu
bloggi manns sem hefur mjög skemmtilegan bloggstíl er að finna ansi skemmtilega samsæriskenningu. Dómari Gettu Betur í pönkhljómsveit?
Ekki bara eitt
heldur tvö skattframtöl gerð í kvöld. Framtal móðurinnar var örlítið flóknara en framtal álfsins, auk þess sem það var gert á pappír... PAPPÍR - hvað er málið? Frekar leiðinlegt vægast sagt. En hver ætli sé uppáhaldsbarnið þessa vikuna?
Nú er það bara spurningin hvort kvöldinu verður varið í hangs eða lærdóm...
Mánudagur til mæðu.
Súperskipulagða konan hefur eitthvað örlítið misst tökin á lífi sínu með þeim afleiðingum að verkefni vikunnar virðast næstum óyfirstíganleg og þar að auki þarf að skila skattframtalinu í dag. En þá er gott að vita að það er til eitt óbrigðult ráð sem reddar málinu. Nefnilega bara að bretta upp ermarnar, eyða korteri í skipulagningu og byrja... Og það er nákvæmlega planið :)
Ó ó ó
Nú verður ekki aftur snúið. Einu og hálfu ári eftir að hafa opnað
útskriftargjöfina mína frá fjölskyldunni er ég að byrja að leika mér. Og vá hvað það er gaman að setja saman LEGO. Ég er að búa til róbót sem getur labbað og heilsað og svo get ég forritað hann til að gera eitthvað fleira skemmtilegt. Nú er bara spurningin hvað hann á að heita. Frankenstein?
Vei vei vei!
Ég er komin með ísskáp. Og það engan smáísskáp heldur alvöru fjölskylduísskáp með þrískiptum frysti og pláss fyrir allan heimsins mat. Nú verða sko stakkaskipti á mínu lífi þar sem ég mun fara einu sinni í viku í Bónus til að fylla undratækið af ljúffengu hráefni til þess að geta eytt kvöldunum stumrandi yfir pottunum töfrandi fram hvern gómsæta réttinn á fætur öðrum. Eða að ég fylli hann bara af bjór...
London
var skemmtileg. Samt er eitthvað við hana sem nær ekki til mín á sama hátt og Köben.
Bjuggum í íbúð rétt við Sloane Square sem er voðavoðafínt hverfi - og minna mátti nú sjá á bílunum sem stóðu fyrir utan húsin. Pökkuðum upp úr töskunum okkar á nákvæmlega þremur mínútum eftir að við komum inn í íbúðina og drifum okkur út í súpermarkað til að kaupa bjór og aðrar nauðsynjar. Vorum síðan allar þrjár farnar að hlakka til að fara heim í heitt bað og rólegheit en því átti ekki að heilsa. Komum inn, kveiktum ljósin og á kertum og bjuggumst til að gíra okkur niður þegar yngsta barnið gerði heiðarlega tilraun til þess að kveikja ljósin á baðinu. Blackout takk fyrir og engin leið að redda því. Verkfræðingurinn greip kerti og fann rafmagnstöfluna en lekaliðarnir allir uppi og engin leið að finna út úr því hvað var að. Móðirin hringdi við kertaljós í eiganda hússins og tjáði sig fjálglega um "my daughter, the engineer" sem var sko búin að athuga rafmagnstöfluna. Leigusalinn lofaði rafvirkja eða nýrri íbúð við lítinn fögnuð mæðgnanna sem nenntu hvorki að flytja né sitja lengur í myrkrinu. Vesenið endaði með flutningi sem tók nákvæmlega fimm mínútur enda ekki langt á milli íbúða og lítið mál að pakka dótinu aftur. Var þetta söguleg byrjun á sögulegri ferð.
Næsti dagur fór í búðaráp sem ekki er í frásögur færandi - nema e.t.v. fyrir þá sök að Campersóða stúlkan fann enga Campers skó og engin stígvél eins og hana langaði í og þurfti því að fara næstum tómhent heim af Oxford Street - ótrúlegt en satt. Um kvöldið var svo mikið við að vera - enda áttu mæðgurnar miða á "When Harry met Sally" með engum öðrum en stórsjarmörnum Luke Perry í hlutverki Harrys. Reyndist það ofsagaman - og nú get ég sagt með stolti að ég hef séð afturendann á téðum Perry án fata. Geri aðrir betur!
Menningarþörfinni var svalað á sjálfum afmælisdegi móðurinnar með ferð á Tate Modern á síðasta degi sýningar Ólafs Elíassonar - The Weather Project. Ofsamerkilegt, magnað og stórbrotið... Ekki nei - en áhugaverður brandari engu að síður. Og svo held ég að ég skilji ekki alveg list.
Um kvöldið hafði verið pantað borð á The Cedar Lounge - heimilislegum ítölskum veitingastað sem samkvæmt internetinu átti að vera einn af þeim allra bestu í London og við hæfi þvílíkum merkisatburði sem sextugsafmæli móður minnar sannarlega er. Það runnu því á okkur tvær grímur þegar við gengum inn á kokteilbar með danstónslist í botni og ekkert ítalskt að sjá... Við skoðun reyndist matseðillinn heldur ekki ítalskur heldur líbanskur - hvað var að ske. Við ákváðum að láta ekki smámuni eins og dúndrandi techno og líbanskan mat ekki slá okkur út af laginu og gera gott úr öllu saman og pöntuðum mat og rauðvín - og hvort tveggja reyndist snilld! Kvöldið var áhugavert svo ekki sé meira sagt - en förum ekki nánar út í þá sálma...
Nenni ekki að skrifa meira í bili - en vil þó bæta því við að ég er með Iðnaðarbankalagið á heilanum - hvað er það? Iðnaðarbankinn er með á nótunum, með á nótunum, með á nótunum....
Lífsspeki úr Diet Coke
var næstum búin að gleyma spádómnum sem ég fékk úr Diet Coke flösku um daginn: "Mikill erill einkennir líf þitt um þessar mundir. Ekki reyna að gera meira en þú telur þig hafa burði til að takast á við. Þú ert minnt/ur* á að koma verkefnum í hendur samstarfsmanna þinna eða vina og sýna þeim traust til að takast á við hlutina jafnvel og þú ert fær um." Spooky!
*drekka karlmenn Diet Coke? Ég hef að minnsta kosti aldrei séð það gerast. Alvörukarlmenn drekka hins vegar Pepsi Max!
Lundúnaferðin nálgast eins og óð fluga...
og ég er farin að hlakka til. Eins og venjulega á ég eftir að gera milljón hluti áður en ég fer út en ætla þó ekki að endurtaka leikinn frá Köbenferðinni þar sem ég fór ósofin um borð í vélina.
Ísskápnum hef ég enn ekki reddað enda hef ég komist að því að það er í lagi að geyma 1/4 lítra fernur af mjólk utan kæliskáps, pepsi max bragðast ágætlega volgt og það er kominn tími á bjórpásu. Ok - eða ég er bara frekar löt þegar kemur að svona framkvæmdum. En ef einhver veit um ísskáp sem vantar nýtt heimili - þá má hann endilega hvísla hér að neðan.
Mmmm... sunnudagur...
Sex and the City, Pepsi Max og sígó. Gærkvöldið algjör snilld - Svampaboð hjá Siggu Svampi - góður matur, rauðvín, g & t, skemmtilegt fólk og skemmtilegar samræður. Og svo Ölstofan þar á eftir - skemmtilegt fólk þar líka og gaman.
Annars er frasi vikunnar: "Réttu mér internetið"
Í minningu ísskáps.
Ísskápurinn minn dó um daginn eftir að hafa opnast í fjarveru minni og þar af leiðandi reynt hetjulega að kæla alla íbúðina mína. Eins og venjulega var enginn matur af viti í skápnum svo að tjónið varð ekki mikið. Ef ekki væri fyrir mjólk og Pepsi Max og bjór þyrfti ég eiginlega ekki að eiga ísskáp. Og nú er tækifærið til þess að eignast SMEG ísskáp - flottasta ísskáp í heimi. En sá galli er á gjöf Njarðar að hann kostar 150.000 kr. Hversu klikkuð er ég? Bið lesendur að muna eftir því að Bismark var keyptur á Visa rað...
Undarlega bíómyndin sem er líf mitt
heldur áfram. Einhvern veginn eru sum tímabil þannig að mér líður eins og það sé alveg að koma 2.5 börn, skutbíll og hundur í garðinn við raðhúsið. Svo koma dagar eins og þessir þar sem allar klisjur í öllum bíómyndum um ungar stúlkur gerast í real life. Sit núna heima og klóra mér í hausnum yfir þessu öllu saman.
Er reyndar fegin að lífið skuli vera undarleg bíómynd frekar en pakkinn með börnunum og skutbílnum...
Buxur...
Brjálæðislega flottu Diesel buxurnar eru mínar! Lét undan lönguninni og brunaði upp í Kringlu klukkan 17:53. Hljóp í gegnum Kringluna (veit það er ekki kúl - vonandi sá það enginn) til þess að komast inn fyrir lokun og b u x u r n a r e r u m í n a r . . .
Undarlegur dagur
Sum atvik eru þannig að þau ættu frekar heima í bíómynd en raunveruleikanum. Mér finnast þannig atvik alltaf skemmtileg. Skemmtilegt gærkvöld, fínn morgunn og góður dagur hingað til. Var að vinna í snilldarbúðinni hennar
Bryndísar,
ONI við að selja föt og eyrnalokka og spjalla við þá sem duttu inn. Langt síðan að ég hef unnið í búð og það kom mér á óvart hvað mér fannst það gaman. Og nú stend ég frammi fyrir ansi stórri ákvörðun - á ég að hlýða kalli tólfþúsund króna diesel buxnanna sem hafa ásótt mig frá því að ég mátaði þær í 17 í gær? Ohhh.... lífið er svo erfitt : )
Föstudagur...
Tíminn líður svo hratt að það er alltaf föstudagur. Ekki að ég sé að kvarta enda finnast mér föstudagar skemmtilegir.
Afkastaði bara nokkuð miklu í gær - lét lækna froskinn á besta bílaverkstæði bæjarins og borgaði skammarlega lítið fyrir viðgerðina. Fór síðan í uppastórmarkaðinn Nóatún og keypti kálfalundir og salat og fór síðan heim og tók til. Sóley sæta kom svo í mat og spjall og við komumst að ýmsum niðurstöðum um lífið. Og ég t.d. að þeirri staðreynd að hversu mikið sem mig langar að neita því, þá er ég uppi. Ég ætla því að taka heils hugar undir hin spöku orð: "Sá sem á mest dót þegar hann deyr, vinnur"
Fatlaði froskurinn.
Haldiði ekki að ég hafi meitt froskinn í gær? Var á mikilli hraðferð frá vinnu í skólann og hafði lagt bílnum fullnálægt kantsteininum þannig að þegar ég bakkaði hratt úr stæðinu reif ég svuntuna neðan á framstuðaranum af öðru megin. Þannig að stúlkan, með gemsann í hendinni, stökk út, reif svuntuna neðan af hinu megin, fleygði henni í aftursætið og brunaði af stað. En núna verður að fá froskalækni til að laga greyið - það er ekki sjón að sjá hann. Fúlt.
Hvernig er hægt að skapa stemmningu með orðum eins og hérna?
Hvaða tilfinningu vekja eftirfarandi línur:
Á hornréttum fleti
Milli hringsins og keilunnar
Vex hið hvíta blóm dauðans
úff - hvað þetta er súrt og einkennilegt - en samt fallegt. Og virkar líka sem sci fi pæling...
.
Gagnsæjum vængjum
Flýgur vatnið til baka
Gegn viðnámi sínu.
Hið rauðgula hnoða,
Sem rennur á undan mér,
Fylgir engri átt.
Handan blóðþyrstra vara
Hins brennandi efnis
Vex blóm dauðans.
Á hornréttum fleti
Milli hringsins og keilunnar
Vex hið hvíta blóm dauðans.
Steinn Steinarr
Ég var búin að ákveða að eiga bara þýska bíla
og var bara nokkuð sátt við ákvörðunin - þangað til að ég sá frétt á mbl.is um bíl eingöngu hannaðan af konum - sjá
hér. Fyrir utan hvað mér finnst kúl að svoleiðis bíll sé loksins til - og já, nei - ég nenni ekki að taka þátt í umræðum um kynjakvóta og sértækar aðgerðir og svo framvegis, þá er þetta massakúl. Það þarf bara að skipta um olíu á 50.000 kílómetra fresti en ekki 5.000 (og ég þarf einmitt að fara með Froskinn í smurningu og nenni því ekki) - það er ekkert húdd og bíllinn er næstum viðhaldsfrír. Jeiii!!! Konur eru klárastar.
Annað er það í fréttum að ég er ein eftir í vinnunni og það er svo mikið rok að ég þori eiginlega ekki út og niður manndrápsstigann niður á bílaplan. Er að spá í að ímynda mér bara að ég sé prinsessan í turninum og vera hérna þangað til að einhver kemur og bjargar mér...
Stjörnuspá dagsins í dag:
SPORÐDREKI 23. október - 21. nóvember
Vinsældir þínar eiga eftir að aukast mikið á þessu ári. Það er hreinlega eins og allir vilji vera í návist þinni.
Hvernig get ég annað en verið ánægð með þessa spá?
Við Bismark erum að chilla.
Klukkan er átta á laugardagskvöldi og dagurinn hefur verið áhugaverður svo ekki sé meira sagt. Er búin að læra, fara á kaffihús og í opnun á ljósmyndastúdíói, heimsækja móður mína og hafa það gott. Sit núna og nýt einverunnar áður en ég held út í nóttina að gera einhvern óskunda. Það liggur bara í loftinu að kvöldið verður eftirminnilegt.
Hitti 5kólablaðsstrákana í gær þar sem Burns er fjarri góðu gamni í Strasburg. Reyndar held ég að gamnið hennar þar sé gott. Við drengirnir sátum að sumbli heima hjá mér bæði fyrir og eftir góða máltíð á 3 Frökkum. Mmmm... hvalkjöt og reyktur lundi - snilld. Góðar samræður og gaman að hittast. Fyndið samt að hlutverkaskipting 5kólablaðsins er enn sú sama og það tók menn ekki nema korter að establisha hana aftur. Fólk er skemmtileg dýr :)
Enn og aftur af Turkmenbashi.
Glöggir lesendur þessarar síðu vita að mér finnst enginn maður fyndnari en Sapurmurat Niyazov, faðir allra Túrkmena. Nýjasta fréttin af honum er
þessi. Maðurinn er náttúrulega snillingur.
Líf hinna ungu og einhleypu ;)
15.02.2004 3023407 10-11 1.779,00 kr.
19.02.2004 1013808 ELDSMIÐJAN 2.725,00 kr.
20.02.2004 3013976 VÍNBARINN 700,00 kr.
20.02.2004 3018207 VÍNBARINN 750,00 kr.
20.02.2004 3013995 VÍNBARINN 600,00 kr.
20.02.2004 1014017 VÍNBARINN 250,00 kr.
21.02.2004 3010031 VEGAMÓT,BISTRÓ 1.420,00 kr.
21.02.2004 3029488 AKTU TAKTU 797,00 kr.
21.02.2004 1037186 ÖLSTOFA KORMÁK 2.100,00 kr.
22.02.2004 3023743 10-11 230,00 kr.
Kvöld hinna fyrrverandi.
Tilviljanir í lífinu geta verið fyndnar. Fór í partý með Sóleyju í gamla vinahópinn minn og átti mjög skemmtilegt spjall við manninn með hanakambinn. Hann var hress og ég var hress og það var gaman. Við skunduðum svo á Ölstofuna þar sem ég hitti Einar. Hef ekki séð hann í rúmt ár og fannst gaman að sjá hann. Við áttum gott spjall - e.t.v. ekki sniðugt að ræða saman þegar nokkrir bjórar hafa verið innbyrtir en samt...
Finnst gott að geta talað við þá báða án biturðar og leiðinda og finnst þeir báðir skemmtilegir :) Gaman að því. Fortíðinni breytir maður ekki en framtíðin er óskrifað blað. Og mér finnst gaman að skrifa.
ég er geimvera

You are the Martian Chronicles (Ray Bradbury);
poetic, adventureous, intelligent, and ironic.
You could be understood by a very precocious
fourth grader. But you are brilliantly
imaginative. You can write an etherealy real
story. Perhaps the world won't blow up so bad
after all...
Which Book are You? brought to you by Quizilla
Fjölskylda mín er klikkuð!
Fór með móður minni og systur í bíó á Big Fish áðan. Mér fannst hún ekki mjög skemmtileg - en mömmu fannst hún hundleiðinleg og dró okkur systur mína út eftir klukkutíma. Sem var svo sem bara ágætt.
Átti mjög skemmtilegt kvöld í gær á surprise, surprise... Ölstofunni. Byrjaði með vinnufélögunum á Vínbarnum, sem ég gleymi alltaf að sé til og svo færðum við okkur yfir á Bölið. Hitti fullt fullt af fólki og átti furðulegar samræður við mann sem Bryndís var búin að segja að væri asni - svo ég tók hennar orð fyrir því og bullaði bara í honum. Ég er sumsé sérfræðingur í áströlskum rauðvínum...
Hámark letinnar.
Mér til skelfingar uppgötvaði ég í gærkvöldi að heimili mitt var Pepsi Max laust. Nú voru góð ráð dýr! Eftir örlitla umhugsun komst ég að því líka að ég hafði gleymt kvöldmatnum. Augljósasti kosturinn í stöðunni var að rölta út í búð og bjarga þessu en ég nennti því bara ómögulega. Þá rann upp fyrir mér ljós - ég panta bara pizzu. Sem ég og gerði og snilldarpizzastaðurinn var m.a.s. til í að senda mér líka einn bjór :) Málinu reddað.
Angurværð
er ein af uppáhaldstilfinningunum mínum. Var að keyra heim úr vinnunni og hlusta á snillinginn Will Oldham og fylltist allt í einu angurværð. Hafði átt mjög skemmtilegar msn samræður fyrr um daginn og þær sátu í mér - og eiga væntanlega eftir að gera það næstu daga. Samræðurnar byggðu grunninn fyrir angurværðina og Will Oldham triggeraði hana.
Svo byrjaði ég að skrifa þessar línur og þá kom Einar skólasnillingur inn á msn og sagði mér frá einhverju sem heitir NLP og er einhvers konar aðferðafræði til að endurforrita hausinn á sér. Skemmtilegt að hann lesi bloggið mitt og líka skemmtilegt að hann hafi sagt mér frá þessu. Spurning um að googla þetta snöggvast ;)
Kæru vinir og vandamenn.
Ég skrifa þessar línur í fyllstu alvöru. Ef ég skyldi falla frá á næstunni vil ég að jarðneskum leifum mínum verði skotið út í geim. Reyndar hef ég hugsað mér að láta frysta mig eftir dauðann svo hægt sé að vekja mig þegar geimverurnar eru lentar en þar sem ég er ekki búin að gera viðeigandi ráðstafanir þar að lútandi held ég að
geimútförin sé næstbesti kosturinn. Virðingarfyllst,
Víraði álfurinn
Klukkan er seint og ég er nýkomin heim :)
Er búin að eiga algjörlega brilliant kvöld með Sóleyju sem byrjaði snemma og endaði á Ölstofunni í misjöfnum félgasskap. Hitti ansi marga, Halla frænda, undarlega manninn sem er með mér í skólastofu Survivor kúrsinum mínum (áhættu- og óvissustjórnun), Sigga hennar Siggu og manninn sem vill ekki taka myndir af nöktum konum auk félaga míns frá þarþarsíðustu helgi. GAMAN
sumir dagar byrja illa og skána...
þessi dagir byrjaði vel og versnaði. Hann er þá e.t.v. handhverfa fyrrnefnda dagsins? Og svo umgengst ég eiginlega efnafræðinga of mikið.
Samræður.
Flestir sem þekkja mig vita að mér finnst gaman að tala. Átti mjög áhugaverðar samræður við unga konu áðan sem fengu mig til að hugsa ýmislegt upp á nýtt. Sem er gott. En þá fór ég að spá í hugsanamynstur. Ég hugsa á ákveðinn hátt - áreiti vekur viðbrögð í höfðinu á mér í samræmi við þetta mynstur (fer auðvitað líka eftir skapi, umhverfi o.s.frv. - margar breytur sem hafa áhrif fyrir utan áreitið) og í framhaldi af hugsuninni koma einhver meðvituð viðbrögð, eða gjörðir. Allt í einu er ég að uppgötva að þetta mynstur er ekkert óbreytanlegt og það er hægt að þjálfa sig í hugsun og viðbrögðum. Fólk getur forritað sjálft sig. Magnað. Maður gæti því þjálfað sig í víðsýni (eða þröngsýni eins og ég hef komist að).
Hvernig gat Master and Commander
fengið fjögur BAFTA verðlaun? Horfði fólkið ekki á myndirnar sem það kaus? Jahérnahér! Ég er svo hissa!
Kaupmannahöfn er svo mikil snilldarborg!
Anna Helga og Ámundi eru líka snillingar. Og skemmtilegasta tegund af fólki sem ég veit um er NördastelpanTM. Sat með tveimur slíkum á Zoo Bar um helgina og ræddi m.a. djúpheilaörvun - borað er tíu cm inn í höfuðið til að koma fyrir rafskautum djúpt í heilanum á sjúklingnum sem er vakandi á meðan. Rafboð eru síðan send í heilann og örvunin stillt með feedback frá sjúklingnum. Shit hvað þetta er kúl :)
Spiseloppen stendur líka alltaf fyrir sínu, sem og H&M og öll snilldarkaffihúsin sem eru í þessari borg. Bætti tveim nýjum í safnið - Bankerot sem er ótrúlega svalt. Uppstoppuð dýr í jakkafötum og selur í bandi. Frekar spooky en mjög flott. Rakst einmitt á Snorra félaga minn þar af tilviljun. Frekar skemmtilegt.
Ótrúlega vel heppnuð ferð að öllu leyti. Svona á að lifa :)
Pizzasendillinn og Innlit/Útlit.
Pantaði mér pizzu frá snillingunum á Eldsmiðjunni áðan og pizzasendillinn tjáði mér að honum litist á rauða lúkkið á íbúðinni og það væri svona Innlit/Útlit fílingur hjá mér. Ætti ég að skammast mín? Já. Geri ég það? Nei...
Atvinnurógur!
Í þessari
frétt sést hvers konar hroka og hleypidóma ég og starfssystkin mín þurfum að starfa við. En við brosum í gegnum tárin þrátt fyrir allt. Kannski ég ætti samt að stofna þrýstihóp til að vinna gegn þessum fordómum. Ætli Stefán Karl sé til í að vera forsprakki?
Hmmm...
ekki mjög skemmtilegt að IcelandExpress er að auglýsa tilboð til Köben á 10.000 kall á nákvæmlega þeim dagsetningum sem ég er að fara og ekki hægt að breyta miðunum mínum. En jæja - það er svo sem eins og hvert annað hundsbit. Tvö hundsbit komin í dag og mér finnst það alveg nóg. Restin af deginum verður þá bara góð í staðinn...
Birna komin heim frá Kanada og ég bíð spennt eftir ferðasögunni sem verður sögð í góðum félagsskap á Ölstofunni í kvöld. Húrra fyrir Birnu og húrra fyrir Ölstofunni.
Draumar...
Dreymdi undarlega í nótt - en alveg í takt við hugsanir mínar. Maðurinn er einkennileg skepna. Fór í fyrsta skipti á réttum tíma að sofa svo að ég var líka mætt á réttum tíma í vinnuna. Maður á að þakka fyrir það smáa.
Afmæli hjá ömmu á fimmtudaginn og svo Köbenferð á föstudaginn. Það er ekki laust við smáfiðring af þeim sökum. Væri reyndar alveg til í að vera lengur en það er spurning um að taka bara lengri ferð þangað í haust. Og svo á ég nú alltaf eftir að heimsækja Svíadrottninguna í Stokkhólmi.
Íslensk veðrátta...
Hvað er með þennan vetur? Undanfarin ár hefur varla komið snjókorn og ég var farin að halda að snjóþungir vetur æsku minnar væru ímyndun ein og á Íslandi væri varla vetur. En nei - þennan vetur hefur kuldaboli kosið að sýna tennurnar svo um munar og mér er síkalt. Ekki get ég gert því skóna að Köben verði skárri þar sem mér hefur aldrei verið jafnkalt og veturinn 2001 þegar ég var skiptinemi þar. En það verður nú samt gott að skipta um umhverfi þrátt fyrir að það verði varla hlýrra þar en hér. Búið að panta borð á Spiseloppen og svo er stefnan bara tekin á rölt í miðbænum og rólegheit. Gott plan.
Þreif íbúðina mína í gær og þungu fargi af mér létt við það. Ótrúlegt hvað er hægt að mikla lítil verk fyrir sér. Átti gott kvöld undir svefnpoka og teppi í frystiklefanum heima hjá Ragnhildi og horfði á America´s next top model. Snilldarsjónvarpsefni :) Ég held með Elyse eða Adrienne...
Sunnudagsblogg
Frábært - er vöknuð um hádegi og allur dagurinn eftir. Átti furðulegt föstudagskvöld og frekar súran laugardag. Fatabúðin Oni opnuð með pompi og pragt í gær - voðagaman og sömuleiðis gaman að kíkja til Vöku í afmælispartý. Endað samkvæmt venju á Ölstofunni þar sem var mikið af góðu fólki en samt farið snemma heim í háttinn. Og nú er bara spurningin i hvað á að verja þessum degi...
Lærdómur, þrif og fjölskylduheimsóknir?
Hádegismatur
á Vegamótum með brósanum mínum. Gott spjall og góður matur - fínt að geta rætt hlutina. Helgin alveg að bresta á, verður skemmtilegt að sjá hvernig hún spilast samanborið við síðustu tvær helgar... Fékk fréttir sem hrærðu dálítið upp í mér en ættu ekki að gera það.
Partý hjá tveimur snillingum annað kvöld, verst að geta ekki verið á báðum stöðum í einu. Spurning um að vera e.t.v. bara róleg í kvöld og safna kröftum. Einhvern veginn held ég samt ekki...
Sumar fréttir eru bara of fyndnar :)
Af mbl.is: "Til pólitískra deilna hefur komið milli Perú og Gabon vegna meintrar ósæmilegrar framkomu af hálfu Omars Bongo forseta Gabons gagnvart perúsku fegurðardrottningunni Ivetta Santa Maria.
Sendiherra Perú hjá Sameinuðu þjóðunum hefur komið á framfærum mótmælum yfirvalda í Líma vegna þeirrar meðferðar sem fegurðardrottningin hlaut er hún kom til Gabon sem heiðursgestur fegurðarsamkeppni þar í landi.
Eftir komuna til Gabon var Ivette Santa Maria ekið til forsetahallarinnar og leidd inn í herbergi með stóru rúmi. Af hálfu stjórnvalda í Libreville, höfuðborg Gabon, er því mótmælt að ætlunin hafi verið að fá ungfrúna að ganga til sængur með forsetanum, eins og hún hefur haldið fram.
Bongo forseti er 67 og hefur verið útnefndur þjóðhöfðingi til æviloka. Enginn afrískur þjóðhöfðingi hefur gegnt starfi jafn lengi og hann."
Líf einhleypu konunnar...
Ísskápur tómur - fyrir utan þrjár tegundir af gosdrykkjum. Úr matarskápnum leggur óþekktan þef (getur hvítlaukur skemmst?). Kvöldmatur: ein Special K stöng og bolli af bollasúpu. Hrein föt í lágmarki. Sjampó og hárnæring og andlitskrem búið. Löngun til að fara í stórmarkað í lágmarki. Löngun til þess að gera meira en að horfa á Skjá Einn eða sötra bjór á ölstofunni í lágmarki. Hæfileikar til þess að vakna á morgnana í sögulegu lágmarki.
Lífið er fyndið, sniðugt og skemmtilegt :)
Sumar vikur eru bara eins og klipptar út úr súrrealískri bíómynd. Undanfarnar vikur hafa verið þannig hjá mér. Hápunkti súrrealismans verður náð í kvöld. En já, er búin að átta mig á nokkrum hlutum:
Palli er ekki einn í heiminum og maður þarf að taka tillit til tilfinninga annarra.
Það að vera reiður og sár gefur manni ekki leyfi til að traðka á öðrum.
Góðir vinir eru gulli betri.
Það verður brjálað að gera hjá mér í vinnunni á næstunni og mér finnst það frábært.
Maximillian væri líka gott nafn á persakött.
Borg draumanna - here I come!
Var að enda við að bóka Kaupmannahafnarferð 13. - 15. febrúar :) Snilld!
Til hamingju með afmælið Hexía og Norn!
Nornasveimurinn á afmæli í dag. Það er snilld!
Svanurinn er floginn...
Eitt af því sem snobbuðu mér hefur fundist skemmtilegt við vinnuna mína er ekta
Arne Jacobsen svanur sem ég sest stundum í með kaffibolla og skjöl sem ég þarf að lesa yfir og get ekki einbeitt mér við þegar ég sit við skrifborðið. Þá finnst mér ég mjög mikill uppi. En í þessum skrifuðu orðum er svanurinn að fara - hann á að fara á súperstílísku skrifstofurnar í Hafnarfirði. Ég er ekki sátt.
Batnandi manni er best að lifa.
Ótrúlegt en satt vaknaði ég (með dyggri aðstoð Birnu) klukkan
sjö í morgun, skellti mér í sturtu, bjó til morgunkaffi og fékk mér morgunmat og var mætt í vinnuna rétt rúmlega átta. Samstarfsmenn mínir ráku upp stór augu - enda óvanalegt að ég komi inn fyrr en þrjár mínútur yfir níu... Í dag munu sumsé örugglega gerast merkilegir hlutir, svo fremi sem ég sofna ekki fram á skrifborðið mitt.
Hver vegur að heiman er vegurinn heim...
Pálmi Gunnarsson er alveg að gera sig hérna í útvarpinu í vinnunni. Finnst samt pínusorglegt að ég sé í einhverri nostalgíu með PG.
Er búin að vera að lesa stelpubókmenntir í anda Bridget Jones undanfarna daga og hef haft gaman af að velta mér uppúr froðunni. En ekki lengur! Keypti bók sem heitir "Shopaholics Dreamworld" eða eitthvað álíka slæmt og verð að segja að ég held að meira að segja Morgan Kane bækurnar sem ég las sem barn slái þessar bók við í slæmsku.
Söguþráðurinn er eitthvað á þessa leið: Rebekka getur ekki hætt að versla og hefur ekki hugmynd um í hvað peningarnir hennar fara. Hún VERÐUR að eignast hluti og vera góð við sig í mat og drykk. Hún vinnur hjá fjármálablaði og gefur öðru fólki ráð um hvernig það á að fara með peningana sína. Ég veit ekki, mér fannst plottið hafa potential til að vera fyndið - en nei, það er ömurlegt. Held að stelpubókaperíódan sé búin og kominn tími á að snúa sér að einhverju af viti...
Urr...
Helvítis kommentakerfið er ónýtt og ég nenni ekki að finna nýtt. Og svo er mánudagur í þokkabót.
Helgin framundan
og nóg að gera. Lærdómur, vinna, smádjamm og e.t.v. eitthvað fleira skemmtilegt. Já og bjútítrítment á sunnudagskvöldið. Einhver sagði að litun og plokkun gerðu jafnmikið gagn og andlitslyfting. Ég kemst þá að því á sunnudagskvöldið. Nóg að gera í vinnunni undanfarið og lítur ekkert út fyrir að verði lát þar á. Sem er fínt - gott að dreifa huganum þessa dagana.
Brave New World
eftir Aldous Huxley heillaði mig þegar ég las hana sem barn. Hugmyndir um að stjórna þroska fóstra til að stýra hvers konar manneskur þau yrðu, hinir fullkomnu Alfar eða hinir þjónustulunduðu Epsilonar, vöktu með mér undrun og aðdáun í stað hryllingsins sem ég hefði e.t.v. upplifað hefði ég verið eldri en tíu, tólf ára. Og þó - fimmtán árum seinna bærir ekkert á þessum hryllingi. Frétt eins og
þessi um að foreldrar geti valið kyn barnsins síns vekur bara hjá mér forvitni - mér finnast siðferðislegu spurningarnar mun lítilvægari en flestum, m.v. umræður sem ég hef tekið þátt í. Ég hef sjálfa mig grunaða um tæknidýrkun. Ég er ástfangin af tækninni tækninnar vegna og þeirrar skoðunar að þegar vísindamenn þrói nýja tækni fái næstum ekkert stoppað þá. Dettur t.d. einhverjum í hug að við munum ekki klóna börn þegar við getum það? Að siðapostular og mótmælendur fái sitt fram og tækninni verði hafnað? Fáránlegt og auðvitað mun það ekki gerast. Við getum ekki staðið í vegi tækninnar - og við viljum það ekki heldur. Engin tækniframför er óumdeild. Kjarnorka - góð eða vond?
Ég held áfram að bíða eftir geimverunum...
Mánudagur...
getur verið ansi erfiður dagur. Í dag langar mig ekkert til að vinna. En eins og afi sagði: "Það verður að gera fleira en gott þykir". Kannski að ég ætti að fara eftir því.
Bjarni kom aftur í heimsókn til mín og tók með sér annan kött svo þeir biðu tveir eftir mér þegar ég kom heim á laugardaginn. Gaman að því.
Nokkrir nýir linkar komnir inn...
... og allir á eðalmanneskjur :)
02.02.2004
er fín dagsetning til að hætta að reykja. So there!

You are naturally born with a gift, whether it be
poetry, writing or song. You love beauty and
creativity, and usually are highly intelligent.
Others view you as mysterious and dreamy, yet
also bold since you hold firm in your beliefs.
What Type of Soul Do You Have ? brought to you by Quizilla
Nýir þrælar?
Af mbl.is: "George W. Bush Bandaríkjaforseti kynnti í dag yfirgripsmiklar breytingar á lögum um innflytjendur, sem gæti þýtt að milljónir óskráðra útlendinga fengju leyfi til þess að starfa í Bandaríkjunum í takmarkaðan tíma. Sagði Bush í ræðu, sem hann flutti í Hvíta húsinu, að lög um innflytjendur ættu að heimila þeim, sem fúsir væru, að koma til landsins og vinna þau störf sem lægju á lausu og
Bandaríkjamenn vildu ekki vinna við". Já já - mikið er hann góður...
Nágrannakötturinn Bjarni.
Í húsinu við hliðina á mínu býr kötturinn Bjarni. Hann er þó ekki sáttur við að eiga bara eitt heimili og gerir sig heimankominn hjá flestum nágrönnunum að sögn eigandans sem lánaði mér einu sinni eldhúshníf þegar mig vantaði skrúfjárn. Bjarni stekkur inn um stofugluggann minn ef ég hef hann ekki passlega lítið opinn, spígsporar um alla íbúðina og hendir iðulega einhverju niður af hillum og borðum. Eðalkötturinn Bismark er ekki par hrifinn af honum, enda á blíður og varnarlítill persi ekki roð í íslenskan heimiliskött, sérstaklega ekki kött sem er jafnharðsvíraður og Bjarni. Þegar Bjarni hefur klárað matinn hans Bismarks eins og oft hefur gerst, bjargar hann sér bara sjálfur og reynir að opna pokann með þurrfóðrinu. Honum hefur ekki tekist það til þessa en það liggur í loftinu. Yfirleitt stekkur hann út um leið og hann heyrir í lyklinum í skránni enda held ég að hann viti að hann er ekki sérstaklega velkominn á heimilið. Í gær var þó skemmtileg undantekning á því. Sóley sæta skutlaði mér heim eftir kaffihúsaferð á Brennsluna og það síðasta sem ég sagði við hana í bílnum fyrir utan hjá mér var hvað mér þætti leiðinlegt að vera heima hjá mér þegar Bismark væri þar ekki. Þegar ég kem svo inn liggur Bjarni í stólnum hans Bismarks og horfir á mig spurnaraugum. Í stað þess að stökkva út eins og venjan er lagðist hann bara á bakið og vildi knús. Skynsemin sagði mér að henda honum beint út til að reyna að venja hann af heimsóknunum en hjartað réð för eins og venjulega og hann fékk góðan skammt af knúsi. En ég gaf honum þó ekki að borða þó að hann reyndi að plata mig til þess...
Fyrsti vinnudagur nýs árs
að líða undir lok og ég er nokkuð sátt. Gott að koma aftur eftir fríið og nóg af verkefnum framundan.
Ég er þessa stundina að berjast við IKEA drauginn sem vill endilega að ég líti við í sænsku súperbúðinni eftir vinnu. Freistandi... útsala útsala útsala... Arggh
Tabula rasa
eða óskrifað blað... Nýtt ár, fögur fyrirheit og bjart framundan. Ekki slæmt. Var að enda við að skrá mig í tvo kúrsa, Slembin ferli og ákvarðanafræði og Áhættu- og óvissustjórnun. Báðir hljóma vel - og annar þeirra er í viðskiptafræðideild svo ég mun þurfa að sækja tíma vitlausu megin við Suðurgötuna. Líður pínulítið eins og ég sé að byrja í nýjum skóla þar sem ég þekki engan svo ég viti sem er í MS námi í viðskiptafræði. En það verður skemmtilegt að kynnast annarri deild svona á gamals aldri.
Jæja þá - þarf maður að fara að gera eitthvað?
Jólafarganið allt saman búið og kominn tími til að fara að hafa áhyggjur af björgunarhringnum um mittið og febrúarvísareikningnum. Fastir liðir eins og venjulega.
Engin áramótaheit þetta árið - en hins vegar nokkrir hlutir sem ég hef hugsað mér að hrinda í framkvæmd. Ekki strax - en svona með vorinu. Markmið - ekki heit. Ég nebblega orðin svo fullorðin að ég veit að maður á ekki að flana að hlutunum... Hmmm, eða bara löt.
Svo löt að í augnablikinu leita ég mér að ástæðum til þess að gera ekkert af þeim húsverkum öllum sem ég ætlaði mér að gera í dag. Hef sætt mig við þá einu sem skiptir máli, nefnilega að ég nenni því ekki ;)
Bettý kallar - best að hlýða...
Mánudagsblogg
Jahérna hér - hvað fær mann til að mæta í vinnunna milli jóla og nýárs? Ekki er það að það sé svo mikið að gera - allir aðrir eru í fríi og þess vegna ekki mikið af verkefnum. En maður ætti væntanlega að nota tímann til að skipuleggja nýja árið og ný og betri vinnubrögð. En ég nenni því nú varla.
BA er byrjuð að blogga - gott hjá henni :)
Jólablogg.
Það er ansi ljúft að lesa, borða, sofa og knúsa :) Verst að ég fékk enga jólabók þetta árið en annars voru jólagjafirnar mínar frábærar. Erfitt að gera upp á milli bestu gjafanna en sigurvegari í keppninni um bestu jólagjöfina þetta árið er sæti strákurinn sem gaf mér
tyggjókúlusjálfsala. Mig hefur lengi langað í svona græju og meira að segja reynt að verða mér úti um hana en ekki gengið. Með sjálfsalanum fylgdu fjögur og hálft kíló af m&m svo ég á von á að vinir mínir verði duglegir að heimsækja mig á næstunni.
Ég fæ sífelldar staðfestingar á að ég sé klikkuð - sjaldan þó jafnaugljósar og áðan þegar ég stóð mig að því að skipuleggja skipulagningu framtíðarinnar. Ég sá fyrir mér að ég myndi gera þrískiptan lista: Vinna - einkalíf - nám þar sem ég myndi svo forgangsraða þeim hlutum sem falla undir hvern flokk. Undir Einkalíf myndu kærastinn, vinir og fjölskyldan falla og hvert atriði yrði sett á réttan stað með viðeigandi vægisstuðlum. Þið getið hringt í mig og fengið ykkar vægisstuðul uppgefinn. Spurningin er bara hvort kvarðinn verði lógaritmískur eða ekki.
Það versta er að mér finnst hugmyndin góð...
Að læra á nóttunni er magnað :)
Nú er klukkan að verða sex að morgni - ég er glaðvakandi og búin að innbyrða ótrúlegt magn af sjálfvirkum stýrikerfafróðleik... En nú er mál að linni...
Stórmarkaðir...
...hafa einhvern sérstakan sjarma. Reyndar ekki allir, ekki Bónus og Europris og Nettó, en búðir eins og 10/11, Nóatún og Hagkaup hafa hann. Það er eitthvað við uppröðunina og lýsinguna, einhvers konar visual overload sem gleður skilningarvit mín óstjórnlega. Röð eftir röð af baklýstum gosflöskum, niðursuðudósum og snakki í skærlitum umbúðum, svo ekki sé minnst á ávaxta og grænmetisborðin...
Góð saga
Gaman að vera til :)
Þessa dagana er gaman að vera til. Átti æðislega helgi uppi í sumarbústað - borðaði yndislegan mat, las Da Vinci Code sem er algjör snilld, kúrði og horfði á vídeó. Batteríin voru sumsé hlaðin. Og já - Da Vinci Code er svo mikil snilld að ég vaknaði klukkan hálffimm á sunnudagsmorguninn við það að ég var að hugsa um hana og gat ekki sofnað aftur. Þannig að milli hálffimm og hálfníu lá ég upp í sófa, las og borðaði afgang af lambalæri.
Komin með skrifborð heim til mín svo ég get tekið prófin með trompi...
Rómantísk helgarferð.
Jeiii - er að fara í sumarbústað að slappa af á eftir. Ekkert gemsasamband, dvd, góður matur, góð bók, smálærdómur - þetta gæti ekki orðið betra. Reyndar er ég með smáflensu en það hlýtur að lagast í góðri afslöppun. Er búin að vera á skrilljón í skólanum þessa vikuna en nú eru öll verkefni búin og bara prófið eftir. Snilld.
Lúxushelgi.
Mmmmm... var að panta mér tíma í heilnudd á föstudaginn eftir vinnu og er svo að fara í klippingu og litun á laugardaginn. Verð bæði sæt og afslöppuð á stofnfundi Viskýklúbbsins, klúbbs sniðugra ungra kvenna á laugardagskvöldið. Ííííha!
Lati bloggarinn.
Það verður seint sagt að ég sé duglegasti bloggari landsins. Ekki var það nú heldur ætlunin og ekki ætla ég að blogga reglulega um hvað ég er svakalega upptekin og mikilvæg.
Þessa dagana er skemmtilegt að vera til. Reyndar er kæró að chilla án mín í Flórída - en ég fékk hundinn hans lánaðan til að knúsa í gær svo þetta er ekki alvonlaust. Allt að gerast í vinnunni, breytingar fyrir dyrum og skemmtilegt að sjá hvernig það þróast. Held bara að ég hefði ekki getað verið heppnari með starf. Skólinn er á sínum stað og sjálfvirk stýrikerfi jafnóskiljanleg og fyrri daginn. Eyddi átta tímum um daginn í að setja upp hermilíkan af hitaveitukerfi íþróttahúss og skemmti mér nokk vel.
Fullt að gerast í sálarlífinu líka - hreingerning stendur fyrir dyrum - og með guðs hjálp og góðra manna tekst vonandi að losna við mesta draslið.
Spilakvöld í kvöld með vinkonuhóp sem hefur ekki hist lengi. Ég ætla rétt að vona að partnerinn minn í Actionary hafi engu gleymt því nú verður spilað :)
og eitt að lokum...

Take the What
animal best portrays your sexual appetite?? Quiz

You are Form 6,
Elfin: The Wyld.
"And The Elfin saw the evil and
misjudgement in the world and shot her arrow at
the sky. Bolts of lightning struck the earth
and gave the world balance and
growth."
Some examples of the Elfin Form are Demeter (Greek)
and Khepry (Egyptian).
The Elfin is associated with the concept of growth
and balance, the number 6, and the element of
water.
Her sign is the half moon.
As a member of Form 6, you are a very balanced
individual. You can easily adapt to most
situations and you may be a good social
chameleon. You aren't afraid of changes in
your life, but sometimes you evolve too
rapidly, leaving others to think that you are
leaving them behind. Elfin are the best
friends to have because they are open minded.
Which Mythological Form Are You? brought to you by Quizilla
Heldurðu að það sé í lagi að veggfóðra sjónvarpið mitt?
Þessarar spurningar spurði ég sæta strákinn í gær og uppskar bara hlátur!! Hins vegar finnst mér óþolandi hvað sjónvarpið mitt er ljótt og skemmir setteringuna í stofunni minni. Því datt mér í hug að finna mér eitthvað skemmtilegt retro veggfóður og redda málunum þannig. Neyðin kennir naktri konu og svo framvegis. Nú er bara spurningin hvar maður finnur svona skemmtilegt veggfóður...
Æsispennandi afmæli.
Klukkan er rúmlega miðnætti og ég er opinberlega orðin tuttuguogfimm :) Ég ætla að halda upp á það að nördasið og hefja magnaðan maraþonlestur í gæðastjórnun. Íííííííííííha.
Læsti eiginmanninn inni á baði í þrjú ár
Tyrknesk kona læsti eiginmann sinn nakinn inni í baðherbergi í þrjú ár og bar það fyrir sig að hann væri geðbilaður, að sögn tyrkneskra fjölmiðla.
Eiginmaðurinn, 41 árs auðugur iðnrekandi, fannst nakinn og í losti á flísalögðu gólfi við sturtu baðherbergisins. Á gólfinu var skál fyrir matinn hans.
Eiginkonan sagði að enginn vafi léki á því að maðurinn væri genginn af göflunum vegna þess að hann færi þrisvar sinnum í sturtu á hverjum degi. Hún kvaðst nú ætla að skilja við hann eftir 15 ára hjónaband.
"Markmið hennar var að gera mig veikan, þannig að ég myndi deyja og hún erfa allar eignirnar mínar," sagði eiginmaðurinn. Hann bætti við að hún hefði skemmt sér með öðrum karlmönnum meðan hann var læstur inni í baðherberginu.
Maðurinn fannst eftir að nágrannar gerðu móður hans viðvart og hún hringdi í lögregluna.
Eiginkonan verður ákærð og maðurinn fær nú geðlæknishjálp vegna sálræna áfallsins.
af
mbl.is
Fjöldamorðingjamartröð
Hef fengið mikið af martröðum undanfarið. Dreymdi í nótt tvo drengi á unglingsaldri sem höfðu drepið Nick Cave og ætluðu næst að snúa sér að mér. Megnið af martröðinni var ég á ofsafengnum flótta undan þeim, annað hvort hlaupandi eða á hvítum Benz sem ég hafði keypt fyrir söluandvirði Frosksins (eftirsjáin eftir þeim bíl var mikil í draumnum...). Einhverra hluta vegna hafði ég samt einhver tengsl við eldri (og sjúkari) unglingsdrenginn og vildi ekki endilega að þeir sem reyndu að vernda mig fyrir morðtilræðum hans við mig næðu honum... Geðrannsókn fyrir mig?
Mánudagur á þriðjudegi.
Einhverra hluta vegna er mánudagur í mér í dag. Ég veit ekki alveg hvers vegna. Brjálað að gera við að vera háskólanemi - próf á laugardaginn sem gerir lítið úr 25 ára afmælinu á föstudaginn. Og ég hef ekki tíma fyrir sjálfskönnunina sem nauðsynleg er fyrir stórafmæli sem þetta. Og, já, mér er alveg sama þó einhverjir séu ósammála því að þetta sé stórafmæli - mér finnst það samt. Ef ég man rétt þá á ég einhvers staðar lista yfir hluti sem ég ætlaði að vera búin að gera þegar ég yrði tuttuguogfimm... Eða kannski var það þegar ég væri orðin fullorðin - hef komist að því að það er ekki endilega sami hlutur. En ef ég man listann rétt - þá held ég að ég geti krossað við flest af atriðunum á honum... Ég vil þakka þennan árangur teinakenningunni minni - sem ég ætla að sækja um einkaleyfi á og get því ekki tjáð mig frekar um hér.
Skil ekki enn hvert allur þessi tími fer ...

You are Neo, from "The Matrix." You
display a perfect fusion of heroism and
compassion.
What Matrix Persona Are You? brought to you by Quizilla
HNUSS!!!
Var á svakahotshotfundi í vinnunni minni áðan og þar var mér tjáð að ég væri "skýr stúlka". Frábært - næst verð ég örugglega beðin um að hella upp á kaffi og mér hrósað fyrir að vera þæg stúlka. Urrrr
Animatrix
er kúl :). Álpaðist til að skipta yfir á PoppTíví áðan og þá var bara þessi snilldarteiknimynd í gangi sem ég datt inn í. Komst ekki að því fyrr en að myndinni lokinni að þetta var ein af þessum
Animatrix teiknimyndum sem eiga víst að skýra bakgrunn Matrix myndanna. Ekki það að Matrix II var ekkert að gera góða hluti fyrir mig - en þetta líst mér vel á. Og internetið er svo mikið snilld að ég get bara sótt þetta einn tveir og þrír. Brill- best að fara að horfa...
Ég skil ekki
hvernig fólk fer að því að hafa mikið að gera og klúðra ekki. Undanfarið hef ég haft mikið að gera og ekkert nema gott um það að segja, það er gaman að koma miklu í verk og vera duglegur. En stundum finnst mér eins og ég sé að reyna að halda of mörgum boltum á lofti í einu. Skipulag er e.t.v. lausnin, en nú er ég frekar skipulögð og hef ekkert verið að eyða tíma í vitleysu upp á síðkastið. Og það er ekki eins og ég eigi barnaskara sem ég þarf að sinna eða frekjudósareiginmann sem gargi á kvöldmatinn klukkan sjö. Hvernig fer annað fólk að þessu?
Vá frábært!
Menn gætu lifað í hundruð ára! Í
þessari frétt kemur fram að með genabreytingum á ormum hafi eðlilegt æviskeið þeirra verið sexfaldað... Ég er alveg að sjá hvernig þetta fjarlægir nokkur vandamál. T.d. væri hægt að læra allt sem maður hefur áhuga á í háskóla - nógur tími... En svo er alltaf spurningin hvort maður væri til í að láta fjarlægja æxlunarfærin. Planið gæti t.d. litið út á þessa leið: Láta frysta sig á meðan reynsla kemst á þessa tækni og svo smella sér í þetta þegar byrjunarörðugleikarnir hafa verið slípaðir af. Hmmm... en ætli maður yrði ekki klikkaður af því að vakna eftir tvöhundruð ár og láta þá gera á sér einhverja undarlega aðgerð... Og ætli geimverurnar verði lentar þá?
úff hvað ég er týpísk stelpa...
... endalaust að gera einhver quiz - en núna hætt og farin að vinna...
Fjöldamorðingjablogg...
... Fjöldamorðingjar eru flestir karlmenn. Fyrir utan Myra Hindley veit ég ekki um neinn kvenkyns fjöldamorðingja, hugsanlega fyrir utan bandaríska vændiskonu sem drap þónokkuð af kúnnunum sínum. Það gæti þó hafa verið bíómynd. En ég get nefnt fullt af karlkyns fjöldamorðingjum. Ed Gein sem Slayer gerðu ódauðlegan í "Dead Skin Mask" en Gein fláði fórnarlömb sín og notaði andlitshúðina sem grímu. Hmmm.... Einn getur ekki verið fullt og sá eini sem mér dettur í hug í viðbót er Ted Bundy sem ég man ekkert um nema að hann þótti ótrúlega sjarmerandi og allir voru voða hissa að hann væri viðbjóðslegt skrímsli.
En það var ekki punkturinn. Hvað er það sem fólk fær út úr því að drepa fullt af öðru fólki og geyma það í frystikistu heima hjá sér? Eða að flá fólk og nota andlitshúðina sem grímu? Ég er ekki frá því að rannsóknir sýni að fjöldamorðingjar séu yfirleitt frekar vel greint fólk og að yfirleitt sé ekki um geðveiki að ræða. Tilfinningaleysi? Siðblinda? Flestum hlutum er hægt að velta fyrir sér frá ýmsum sjónarhornum, ræða við aðra til þess að fá fleiri skoðanir og reyna að öðlast einhvers konar skilning eða að öðrum kosti sátt við viðfangsefnið. Eins og t.d. vaxtarrækt. Fyrir mér er hún fáránleg - en ég get þó skilið að það að stefna markvisst að bættum árangri blandað með góðum slatta af hamslausum narcissisma sé eitthvað sem heldur fólki við efnið. Ég get ekki náð þessari sátt og skilningi við hvötina (eða hvatirnar) sem liggja að baki fjöldamorðum. Þegar ég hugsa málið eins langt og ég kemst varðandi fjöldamorð byrjar eitthvað inni í mér að mótmæla - mér verður kalt í hjartanu. En ég er samt forvitin og langar að spá lengra.... Undarlegt

Your serial killer name would be Diablo! You would
be a mastermind in what you do. You would come
up with perfect plans on how to do your bad
stuff, and send out your minions to do it for
you. That would prevent you from getting
caught, because for one reason, they would not
rat you out. Your real name might not be known
and you would be greatly wanted, because as
long as you're out on the hidden streets, there
will still be danger! You're the big guy/girl!
What Would Your Serial Killer Name Be? What Would the Public Know You As? brought to you by Quizilla
Íííííííha - það er að koma helgi!
Ekki það að það skipti höfuðmáli þar sem það er skóli báða dagana frá 9 til 5. Hversu súrt er það? Eins gott að mér finnst gaman að læra. Vikan búin að vera alveg crazy og það lítur ekkert út fyrir að þar verði lát á á næstunni. En í kvöld á ég alla vega frí og get haft það kósý.
Held að færslan hér að ofan sé sú innihaldslausasta síðan ég byrjaði að blogga...
Hvað er það við nóttina?
Ótrúlegt - ég læri heilan dag og kemst varla áfram í námsefninu - svo slær klukkan ellefu og það kviknar á heilanum á mér. Sat við megnið af gærdeginum en afkastaði tvöfalt meira milli 23 og 03 en allan daginn á undan...
Annars held ég að ég geti svarað spurningunni um nóttina sjálf - það er einhver kyrrð og friður sem ég upplifi ekki á daginn. Einhvers konar hyperclarity.
Prófið gekk þokkalega held ég - vona það a.m.k. En núna - læra meira...
Zzzzzz zzzzz zz zz zz...
Syfjuð og á eftir að gera milljón skrilljón hluti... sækja mömmu á flugvöllinn, skrifa minn hluta í verkefni sem ég á að skila á fimmtudag og byrja að læra fyrir prófið sem ég er að fara í á miðvikudaginn... Hvernig datt mér í hug að skrá mig í sjálfvirk stýrikerfi??? En jæja - nenni ekkert að grenja yfir Bjössa bónda - safna bara liði og rústa þessu! Gott plan.
Prímahelgi annars - gott kokteilboð heima hjá mér á föstudaginn og nú á ég hristara og fullt af nýjum fínum glösum. Vinum mínum finnst þó ekki mikið til tónlistarsafns míns koma... Snilldarafmæli á laugardaginn - takk fyrir mig
Ég er klikkuð!
Ef það er eitthvað sem mér hefur þótt hallærislegt hingað til, þá er það bíladella. Þangað til að ég smitaðist sjálf af henni. Stóð mig að því þegar ég var að keyra í vinnuna í morgun að horfa á glansandi svartan Golf með dökkri afturrúðu og segja stundarhátt: "Vá hvað þú ert flottur." Ekki þessi - heldur þú? Hvað er það? Ætli það sé til Volkswagen Anonymous?
Snilldin eina!
Baggalútur er eins og allir vita stök snilld.
Þessi frétt fékk mig til að brosa :) Brot á ellefta boðorðinu eru annars ekkert gamanmál...
Full moon over Hótel Holt.
Labbaði heim af Ölstofunni eftir tvo bjóra í gær og sá mér til mikillar gleði tungl í svipuðu stigi ölvunar og ég - vel rallhálft - glampandi yfir bleiku skilti Hótel Holts. Téð skilti er einmitt einn af uppáhaldshlutum mínum við Reykjavík - skemmtilega sveitó útgáfa af Hollywood skiltinu.
Massaduglegur dagur í dag - mikið unnið og enn meira nördast. Er búin að vera í skólanum, vinna, hlusta á fyrirlestur um kristallagrindur og tvö þeta hornið. Og mér er alveg sama þótt enginn annar í heiminum hafi áhuga á þessu - mér finnst þetta gaman. Svo nördaðist ég meira - útskýrði Pýþagórasarregluna fyrir frænda mínum - mikið þykir mér nú alltaf vænt um hana (regluna og jú, líka frændann). Kórónaði kvöldið með því að dánlóda dvd spilara og einhverju codec dóti svo ég geti horft á Futurama eða West Wing fyrir háttinn. Er að blogga á meðan ég vírusskanna vélina áður en ég restarta og kúri mig svo í stofusófann með dvd.
Tækni er guð og Nietsche hafði rangt fyrir sér.
Aaaarrrrgggghhhh...
Ef það er eitthvað sem er óþolandi, þá er það að reyna að vinna þegar tölvukerfið - og þá sérstaklega póstþjónninn - er síhrynjandi. Er næstum búin að naga af mér báða handleggina við olnboga af pirringi en hef hugsað mér að láta staðar numið og hypja mig heim til mín og reyna að vinna eitthvað þar. Þetta er bara ekki mönnum bjóðandi.
Helgin var góð ;)
Brandari dagsins:
Bjössi 5x^3-20x^2+1 says:
híhi´h ég er orðinn klikk
L í N A says:
hey - einn stæ brandari fyrst
L í N A says:
einu sinni fóru öll föllin í bíó
L í N A says:
þá kom vondi vondi diffurkvótinn (d/dx)
L í N A says:
og öll föllin stukku æpandi út
L í N A says:
nema eitt
L í N A says:
þá sagði diffurkvótinn
L í N A says:
af hverju flýrð þú ekki litla fall - nú kem ég og diffra þig
L í N A says:
þá sagði fallið sigri hrósandi:
L í N A says:
þú getur ekki diffrað mig
L í N A says:
ég er sko e^x
Bjössi 5x^3-20x^2+1 says:
hahahahhh
L í N A says:
ha ha hló diffurkvótinn
Bjössi 5x^3-20x^2+1 says:
ó, ekki búið
L í N A says:
jú - með tilliti til y
L í N A says:
ahahahahahaha
Reality Bites!
Átti ofsaljúft kvöld í gær með BA - fórum í pott og gufu, borðuðum Mekongmat og drukkum rauðvín. Horfðum á
Sex and the City og svo ætlaði ég að fleygja mér í háttinn. Það fór þó öðruvísi - ég fékk lánaða
Reality Bites og ætlaði mér að sofna yfir henni. Ég mundi að hún var góð - en ekki hversu góð. Þarf eiginlega að horfa á hana fljótlega aftur. Winona Ryder er sætust & Ethan Hawke er ekkert að klúðra heldur. Eins og ég hef alltaf sagt - þá klikka myndirnar hans Ben Stiller ekki. En mér tókst sumsé ekki að sofna yfir henni heldur horfði á hana til enda og er þess vegna frekar þreytt.
Snilld!
Inboxið mitt fylltist allt í einu - síminn hringir og fólk mætir á svæðið. Léleg verkefnastjórnun - veit ekki - en ef svo verður því reddað í snarhasti. Efnafræði, lagaleg atriði, fjármálapælingar, mannleg samskipti - allt í einum graut og allt á borðinu mínu. Gaaaaaaman.
Og svo Sex and the city í kvöld að aflokinni ferð í heitan pott og gufu með BA - knús til hennar fyrir að vera snillingur. En núna vinna massívt :)
vangaveltur & vitleysa
Í gær var mér sagt að ég væri kamelljón. Það var sárt. Í kvöld sagði mér manneskja að hún hefði einu sinni verið kamelljón og vanið sig af því...
Átti snilldarkvöld með vinkonu minni og hópi ókunnugs fólks :) Líður vel og ætla að kúra mig undir sæng með Bismark, konunni sem vill tjá sig og Band of Brothers - Volume II. Skemmtilega óviðeigandi ;)
Túrkmenistan
er uppáhaldslandið mitt. (af þeim sem ég hef ekki farið til). Þar ræður forsetinn Saparmurat Niyazov ríkjum, en hann vill láta kalla sig Turkmenbashi, föður allra Túrkmena. Á torgi í miðbæ höfuðborgarinnar er risastór gullstytta af honum, og hún snýst.
Hér má lesa nýjustu fréttir um afrek Turkmenbashi.
Kommentakerfi
handa konunni sem krafðist þess að fá að tjá sig :) Gjörðu svo vel. Þið hin megið líka segja eitthvað.
Dreymdi svo illa í nótt
að ég vaknaði rúmlega sex og gat ekki sofnað aftur. Í draumnum dó maður sem ég á mikið að þakka en er ekki lengur í lífi mínu. Og það sem verra var - það kom engum á óvart að hann dæi. Óhuggulegt - vona að honum líði ekki illa.
Til þess að fullkomna vikuna góðu hringdi loftnetsviðgerðarkallinn í mig áðan og tjáði mér að leigusalinn minn væri ekki tilbúinn til að leggja í neinn kostnað við að redda loftnetinu heima hjá mér. Hmm... best að litli álfurinn græji stiga og vírklippur og fullt fullt af heppni. Það getur ekki verið svo flókið að redda þessu sjálfur.
En í dag er samt gaman - sjarmerandi samstarfsmaðurinn minn er fertugur í dag svo hér eru kökur og kaffi og söngur og gleði :)
Hvernig er hægt
að keyra fram hjá Húsafelli??? Mér tókst það að minnsta kosti - frekar heimskulegt í ljósi þess að þangað hef ég komið tvisvar undanfarið ár. En allavega - ljúft að vera í sumarbústað heila helgi - hugsað, spjallað, hlegið og sofið. Vinkonur mínar fóru í matarslag - en verandi fullorðin og þroskuð manneskja tók ég ekki þátt í því.
Mér fannst Húsafell við hæfi sem sumarbústaðarhugsunaráfangastaður og því hlutverki sinnti það sæmilega. Mig langaði til þess að klára það sem ég byrjaði á þar en það tókst ekki 100%. En það skiptir svo sem ekki öllu máli - tilfinningar sinna sínu hlutverki og það ber að virða, jafnvel þó þær séu sárar.
Kom úthvíld í bæinn á sunnudegi og fannst einkennilegt að ég skyldi reka bílinn minn niður eftir allar hraðahindranirnar á Barónstígnum. "Hmmm... ætli það sé sprungið?" hugsaði ég og gleymdi því um leið. Var svo á leiðinni að sækja eðalköttinn minn í pössun þegar ég rak augun í flatt framdekk. Þetta hefur ekki alveg verið mín vika. En brósi kom loksins og lagaði - boltarnir náttúrulega svo fastir að ekki var nokkur leið fyrir okkur vinkonurnar að græja þetta sjálfar. Lærdómur sögunnar er því að konur án kærasta verða að eiga loftpressu.
Tæklaði stýrikerfin af alkunnri snilld með aðstoð Matlab og get því leyft mér að taka því rólega í kvöld :)
Ég var að vona að ég væri sci fi eða fantasy :(

What fiction genre are you? brought to you by Quizilla
Þetta er akkúrat helgin
til þess að fara í sumarbústað. Úff hvað verður gott að komast út úr bænum og út í sveit. Stefni á að eyða tímanum í algjöra vitleysu og afslöppun og koma heim með hlaðin batterí. Og þá bíða eftir mér æsispennandi stýrikerfi...
Mér finnst að góðhjörtuð sál
ætti að gefa mér
svona spil! Ef af því yrði myndi ég kaupa wiský og vindla og bjóða til pókerkvölds.
Bergstaðastræti er stórhættuleg gata!
Volkswagen bifreiðar og Bergstaðasræti eiga ekki saman. Um daginn straujaði einhver asni froskinn minn og í morgun var keyrt á samstarfskonu mína í þessari sömu götu. Hún vissi að ég var ekki lögð af stað í vinnuna svo hún hringdi og bað mig að sækja sig því bíllinn hennar var óökufær. Við stússuðumst eitthvað og ég hringdi í vinnufélaga minn til að útskýra seinaganginn í okkur. Þá sagði hann: "Well, she had an accident and she calls the world´s leading car crash expert, you?" og svo hló hann bara að mér. Hrmmmph - ekki alveg sátt.
Ég er svolítið munaðarlaus
í skólanum og þekki eiginlega engan sem er með mér í kúrsum. Þess vegna var skemmtilegt áðan þegar tveir mismunandi hópar buðu mér að vera með í hópverkefni sem er að bresta á.
Regardless of the image you present to observers, underneath the surface is a calculating machine on which you count the advantages and disadvantages of every association or friendship, every social contact and social function.
Í dag sá ég mann
tala um að þvottavél sem hossaðist væri dæmi um óstöðugt stýrikerfi. Nemi í þvottavélinni myndi slökkva á vindunni og "hræra betur í fötunum" eins og hann orðaði það. Í því hringdi síminn hans - og hringitónninn var þjóðsöngur Skagfirðinga, Undir bláhimni. Og fólk segir að ég sé skrýtin...
20% árangur hefur náðst.
Markmið #1 hefur náðst og eru hamingjuóskir við hæfi :) Markmið #2 virðist ekki ætla að nást - en ég mun ekki gefast upp fyrr en í fulla hnefana. Hinum markmiðunum verða gerð skil við hæfi í dag. Og ég hef komist að því að miðvikudagsmorgnar á Kaffitári eru algjörlega málið. Bless bless B manneskja - velkomin A manneskja :) Ekki, nei?
Háleit markmið í lífinu!
Einhvers staðar las ég að sigurvegarar settu sér markmið og næðu þeim. Galdurinn væri einfaldlega sá að skrifa markmiðin niður og fara reglulega yfir þau. Held meira að segja að þetta hafi verið goðið
Brian Tracy sem sagði þetta. Og eins og þeir sem þekkja mig vita, þá er ég sigurvegari. Til þess að mér líði meir sem einum slíkum hef ég ákveðið að setja mér markmið og ná þeim í kvöld og á morgun. Markmið mín í lífinu eru sumsé:
1) Íbúð gerð hrein og fín
2) Hryllingsverkefni skilað
3) Mastersumsókn skilað
4) Loftneti reddað
5) Sumarbústaðaferð undirbúin
Lesendum gæti virst þessi verk létt og löðurmannleg en þeim skal bent á að sérhver ferð hefst á einu skrefi og að þegar betur er að gáð er hér um að ræða hornsteinslagningu fyrir framtíðina.
Þegar botninum er náð
er engin ástæða til annars en að vera bjartsýnn og glaður - þetta getur bara orðið betra :) Annars liggur framabrautin fyrir- ég er að leggja inn umsókn um mastersnám í iðnaðarverkfræði á stjórnunarlínu. Fear me puny mortals!
Súpersúr sunnudagur
Held að það sé bara best að sleppa djammi í þessum gír. Ætla að vera heima hjá mér um helgar að rækta minn innri mann. Og gera róbótinn. Bjór er hvort eð er ofmetinn.
Wiredpixie ber nafn með rentu!
Loksins, loksins, loksins. Komin með fartölvu og er búin að eyða undanförnum klukkustundum í að leika mér með sniðugu
stafrænu myndavélina mína,
símann minn og
fartölvuna sem ég er að hugsa um að kalla HP græjuna, til minningar um aðra fartölvu sem eitt sinn reyndist mér vel. En - afrakstur undanfarinna klukkustunda er sá að nú er bakgrunnurinn á skjá símans míns mynd af ljósakrónunni í loftinu hjá mér. Ég ELSKA tækni. Hmmm... þá er bara að sækja Legóróbótinn í geymsluna og byrja að leika fyrir alvöru.
Mánudagur
eina ferðina enn. Þreytt eftir lærdóm fram á nótt, en... búin að læra alveg helling og skil meira að segja hvernig maður varpar ástandsbreytum yfir í aðrar ástandsbreytur. Yes!